Posted by: ellipe | fös, 24. nóv, 2006

Erfið fæðing

Það ætlar að ganga hægt hjá mér að koma þessu bloggi af stað. Ég hef verið á kafi undanfarið, á námskeiðum, fundasetum og jafnvel stundum í vinnu. Undanfarið hef ég líka verið að lesa “Skrefi á eftir” sem er merkilega ánetjandi bók. Hún er rúmar 600 síður, en þegar spennunni er haldið þokkalega við, þá er blaðsíðufjöldinn algjört aukaatriði.

 Ég hafði hugsað mér að setja upp sér síður hérna fyrir áhugamálin mín. Fyrsta tilraunin er síða sem heitir Dire Straits og ég kem til með að bæta við hana smátt og smátt, eins er ætlunin að setja upp fleiri sambærilegar síður um aðrar hljómsveitir, rithöfunda eða eitthvað annað sem ég hef gaman af. Öllum er frálst að setja inn athugasemdir/comment þar sem það er hægt. Ég hef bara gaman af því. Ég vonast eftir að geta komið þessu betur af stað næstu daga eða vikur. Vonandi næ ég svipaðri “aðsókn” og með eldri blog-síðuna sem var farin að fá u.þ.b. 400 heimsóknir á mánuði, stundum allt að 30 heimsóknir á dag, sem mér finnst talsvert mikið og er frekar montinn með. Það gengur bara ef ég skrifa eitthvað af viti, þá er bara að bretta upp ermarnar og virkja sköpunarkraftinn ;)


Responses

  1. gangi þér vel með að koma þessari síðu í gagnið, vonandi virkar hún betur en hinar;)

    kv.
    Eygló


Leave a response

Your response:

Flokkar