Posted by: ellipe | fim, 30. nóv, 2006

Bókatíðindi

Skrefi á eftirVar að ljúka við bókina “Skrefi á eftir” eftir Henning Mankell í þýðingu Vigfúsar Geirdal. Klárlega með mest spennandi bókum sem ég hef lesið. Það kom enginn dauður kafli sem hefði annars verið ágætt inná milli. Það var nefnilega oft mjög erfitt að leggja þessa 600 síðna bók frá sér.

Hér leynist drengurNæsta bók á náttborðið verður bókin “Hér leynist drengur” eftir mæðginin Judy og Sean Barron. Í bókinni segja þau sögu einhverfs drengs hvort frá sínum sjónarhóli. Ég er mjög spenntur að byrja á henni. Ég hafði ætlað að lesa hana fyrr, en einhvern veginn smyglaði “Skrefi á eftir” sér framfyrir röðina.

kv
E.


Leave a response

Your response:

Flokkar