Posted by: ellipe | fös, 15. des, 2006

Bókmenntir, jafnrétti kynjanna og börnin okkar.

Kveikjan að þessum pistli voru ævintýri sem ég ólst upp við. Ég man að vísu ekkiHC Andersen eftir Grimms ævintýrunum sem ég las sem krakki, en eitthvað situr eftir af ævintýrum H.C. Andersens.  Í minningunni var þetta þannig að bóndasonur var hetjan sem gerði kónginum greiða og fékk kóngsdótturina og hálft ríkið að launum (sjá t.d. Hans Klaufa). Þarna er börnum kennt að kóngurinn er aðalkallinn og ræður yfir öllu. Bóndasonurinn fær stúlku sem greiðslu fyrir (vel) unnið verk. Stundum var prinsessan jafnvel fýlupoki mikill og gerði lítið gagn. Hvar var nú drottningin? Hún var ekki með nema hún væri í hlutverki óvinarins (vond stjúpa eða þessháttar). Ég man satt best að segja ekki eftir hetjulegri bóndadóttur (nema kannski Grétu, en þar var óvinurinn líka kvenkyns).
Það má vera að ég sé að rugla eitthvað saman ævintýrum (ævintýri = jákvætt og þ.a.l. rétt hlutverkaskipting?) Eru einhver ævintýri þar sem bóndadóttirin bjargar drottningu sem gefur prinsinn og hálft ríkið að auki?
Ef við lítum okkur nær og skoðum íslensku ævintýrin og þjóðsögurnar, þá er skiptingin kannski ekki alveg eins greinileg, en þó mjög skýr. Tröllkerlingar og tröllkarlar voru í hlutverkum óvinanna. Eru skilaboð í því? T.d. að stórar, miklar konur og tröllslega vaxnir menn eru vondar og heimskar persónur? Eða hefur kannski eitthvað verið til af góðhjörtuðum og gáfuðum tröllum/tröllskessum?
Ég rifjaði upp söguna af Búkollu um daginn. Þar fór bóndasonur að leita að Búkollu, fann hana og lenti í hremmingum, tröllskessan vonda vildi ná þeim. Beljan var göldrótt og bjargaði málunum. Rómantískt ævintýri um dreng, belju og skessu. Engin kvenhetja. 

Trúarrit eru uppfull af þessu ójafnrétti líka.
Biblían segir merkilega sögu. Nýja testamentið segir t.d. frá ævi Jesús Krists sem valdi sér hóp karla til að vera lærisveinar, enga konu (ég lít á Da Vinci lykilinn sem skáldsögu, en þar segir frá nýrri hugmyndum um hlutverk Maríu Magdalenu). Ég hef ekki lesið kóraninn, en miðað við það sem maður hefur lesið, séð, heyrt og upplifað af viðteknum viðhorfum í islamskri trú, þá er ekki mikið jafrétti milli kynja þar (þ.e. jafnrétti eins og við kjósum að skilgreina það). Ég hef ekki neina þekkingu á hindúisma eða búddisma og get því ekki myndað mér skoðun á því.

Endilega leiðréttið mig með þetta. Segið mér frá ævintýrum sem eru ekki svona uppfull af karlrembu. Ég verð þá mjög feginn og afgreiði þetta sem meinloku í mér.

Ég velti því a.m.k. fyrir mér þessa dagana hvaða bókmenntir ég vel fyrir börnin mín.

kv.
E.

ps. Svo er það smámunasemin… hetja er kvenkyns orð sem lýsir karlkyns persónu, ef um er að ræða kvenmann sem fremur hetjudáð, þá er hún kvenhetja.

Þess má geta að minning HC Andersens var heiðruð víða um heim árið 2005, þegar 200 ár voru liðin frá fæðingadegi hans.


Responses

  1. Hvaða hvaða mar.Það þarf nú að gefa þér eina létta sveiflu.Þetta eru bara ævintýri og
    kemur jafnrétti ekkert við.Bæði stúlkur og drengir hafa gaman að þessum sögum.
    Þú ert nú bara orðin algjör k***ing. :)

  2. Smá dæmi:
    Stelpa er hetja og bjargar prinsi sem er lokaður inni hjá tröllkarli. Drottningin móðir hans gefur henni drenginn og hálft drottningarríkið að launum.

    Heldurðu að stúlkum og drengjum þætti svona ævintýri leiðinlegt?
    Ég man þó eftir einni hetju (kvenkyns)… Lara Kroft heitir hún. Manst þú eftir annarri?

    Hvort viltu að dóttir þín taki sér til fyrirmyndar, Löru Kroft eða prinsessuna á bauninni?
    Ég held að ég hljóti að vera Hans Klaufi ;)


Leave a response

Your response:

Flokkar