Mér tókst loksins að klára Rokland e. Hallgrím Helgason. Ég veit eiginlega ekki alveg hvað skal segja um hana. Byrjunin var tæplega 300 síðna löng og svo fór allt í gang. Síðustu 100 síðurnar voru skemmtilegar og spennandi. Þessi langa byrjun var ekki endilega leiðinleg, en frekar langdregin.
Á náttborðið er komin bókin Digital Fortress eftir Dan Brown. Mér skilst að tölvunerðir gætu orðið fyrir vonbrigðum með hana, en ég ákvað að taka sénsinn. Ég held að íslenska þýðingin heiti Hringur Tankados. Ég sá ensku útgáfuna á útsölu hjá Pennanum og stökk því á hana.
Ég hef áttað mig á því að ég er talsvert lengur að lesa harðspjaldabækur heldur en vasabrotsbækur. Þ.a.l. les ég bara kiljur þessa dagana.
Ég er alltaf á leiðinni að lesa spennusögur eftir Alexander McCall Smith sem gerast í Suður-Afríku. Kannast einhver við þær (t.d. Kvenspæjarastofu númer eitt)?
Bókakveðja
E.