Ég birti lausn getraunarinnar fyrir miðnætti… eitthvað miðnætti.
Nú vil ég bara segja frá því að ég er loksins búinn með Digital Fortress e. Dan Brown. Ég hafði gaman af henni, en ég skil vel að tækninörd skuli ekki fíla hana. Hún er verulega vitlaus tæknilega séð, en samt sem áður er hægt að hafa gaman af henni. Maður þarf bara að vera meðvitaður um að þetta er skáldsaga og taka henni ekki of alvarlega.
Ný bók er komin á náttborðið; The Stranger House e. Reginald Hill. Undarleg byrjun á henni, en ég ætla að gefa henni séns. Ég hef lesið bók eftir þennan höfund áður, en það var sakamálasaga með hefðbundnu sniði. Þessi virðist vera öðruvísi, alltént til að byrja með.