Þetta er nú eitthvað undarlegt. Ég gaf nánast svarið í síðustu vísbendingu. Að vísu kom svarið við erlenda hlutanum, gömparinn svaraði réttilega að lagið var Koka kola af plötunni London calling með The Clash.
Innlendi parturinn… hvernig get ég gefið fleiri vísbendingar án þess að gefa bara nafnið? Hljómsveitin starfar ekki lengur, er af landsbyggðinni, söngvarinn er rauðhærður, búsettur í Danmörku og er nýbúinn að gefa út nýja plötu (hægt er að sjá myndir af honum á síðunni hans, linkur í skjóðunni hérna til hægri). Eitthvað tengdist heiti sveitarinnar góðu veðri, sól og sumaryl. Í laginu er sagt að ákveðinn maður sé spinnigal (enda rímar það við nafnið hans o.þ.a.l. heiti lagsins).
Ég gef ekki fleiri vísbendingar, kem með svarið í kvöld hafi enginn náð þessu.
kv.
E.