Þá er komið að röflpistli mánaðarins.
Vinnan mín er í Hlíðasmára (Kópavogi). Eitthvað er af nýjum og nýlegum húsum í götunni. Þegar vel er skoðað, þá eru merkingarnar ekki réttar á a.m.k. einu nýju húsi. Húsið er merkt Hlíðarsmára 2. Með þessu líka fínu stöfum. Ég er viss um að eigandi hússins er of nískur til að breyta þessu úr því sem komið er.
Það er alltaf erfitt að velja hvað maður á að sjá þegar maður fer sjaldan í bíó. Ég hef yfirleitt úr mjög litlu að moða vegna þess að ég kemst ekki á sýningar kl. 20 vegna þess að þá háttar maður börnin og kemur þeim í svefn. Sýningar kl. 22 eru of seint, a.m.k. á virkum dögum. Hvaða myndir eru sýndar kl. 21? Einna helst myndir í Háskólabíói og þá gjarnan myndir sem tilheyra einhverri hátíð. Ég sá einmitt Lady Chatterley sem er sýnd á franskri kvikmyndahátíð. Hún fer í hóp 5 leiðinlegustu mynda sem ég hef séð, hafnar þar í 2. sæti. Ég hefði betur farið á einhverja mynd kl. 22 vegna þess að þessi var búin á svipuðum tíma og þær.
Ég fer oft með strætó heim úr vinnunni og þarf alltaf að taka tvo slíka á leiðinni úr vinnu. Seinni strætóinn virðist alltaf skipta um bílstjóra á sama tíma og ég tek hann, þ.e. um kl. 17:26. Það kom mér þ.a.l. svoldið á óvart þegar ég var aðeins fyrr á ferðinni einn daginn og það var líka skipt um bílstjóra þá (um kl. 17:06). Kannski reyna blessaðir bílstjórarnir að dreifa álaginu sem fylgir því að skutla mér heim. Hver veit?
————————————————————-
Getraunin tengist himintunglum og sólkerfum sem oft áður.
Bæði settin eru erlend að þessu sinni.
Fyrra settið:
Lagið er með hljómsveit sem kennir sig við menningu eða sértrúarbrögð. Lagið ber titil sem vísar í sólkerfið eða jafnvel trúarbrögð. Ég held að titill plötunnar tengist að sama skapi trúarbrögðum. Tvö orð eru í plötuheitinu og annað þeirra er orð sem notað er yfir ákveðna tegund bygginga sem tengjast trúariðkun. Titill lagsins er líka 2 orð og annað þeirra er heiti á tilbeiðslufyrirbæri ákveðinna trúarbragða. Svo getur alveg eins verið að ég sé að misskilja þetta allt
Seinna settið:
Enn er ég að hugsa til himins. Titill plötunnar vísar í himintunglin, ljósin á festingunni (svo ég haldi mig á trúarlegum nótum). Hljómsveitin ber nafn sem virðist tengjast útliti söngvarans. Í laginu er túlkuð ákveðin eftirsjá yfir því að viðkomandi hafi orðið ástfanginn af yfirborðskenndum einstaklingi. Hljómsveitin spilaði á fögnuði sem átti sér stað þegar Man. Utd. kom heim með Meistaradeildarbikar Evrópu, árið sem þeir unnu þrennuna frægu.
Báðar hljómsveitirnar eru breskar.
Góðar stundir
kv.
E.