Hannes reddaði málunum og kom með svar við getraun nr. 8. Að sjálfsögðu var spurt um lagið Sekur um glæp með hljómsveitinni Start. Fyrir þá sem ekki vita, þá var söngvari þeirrar hljómsveitar enginn annar en Eiríkur Hauksson. (Enn eitt dæmið um hæfileikaríkt rauðhært fólk).
—– Getraun nr. 9 —–
Á millitímabili sem myndaðist milli pönk-tímabils og 80’s tónlistar, urðu nokkrar áhugaverðar hljómsveitir vinsælar. Spurt er um lag + plötu einnar þeirrar. Tónlistin er flokkuð sem “nýbylgjutónlist”.
Söngvarinn kom oft fram mikið málaður og í búningum.
Hljómsveitin hlaut grammyverðlaun sem “best new artist” í upphafi 9. áratugarins, sama ár leysti söngvarinn hljómsveitina upp og hóf sólóferil.
Heiti hljómsveitarinnar var orðaleikur sem tengdist nafni söngvarans.
Fyrir þá sem muna eftir Skonrok(k) þáttunum, þá hófst myndband lagsins á því að hetjan (söngvarinn) stökk niður úr tré til þess að ræna hestvagn sem átti leið hjá. Myndbandið er til á youtube.
Í viðlaginu er sagt (í lauslegri þýðingu): “stans, peningana eða lífið”.
Þegar lagið kom út, hirti það toppsætið af bucks fizz (making your mind up) í bretlandi og var þar í 4. vikur samfleytt. Önnur lög sem náðu á toppinn þetta ár voru t.d. “One day in your life” m. Michael Jackson, “Green Door” m. Shakin’ Stevens, “Tainted love” m. Soft Cell og “Under Pressure” með Queen og David Bowie.
Annað lag með sömu hljómsveit náði líka á toppinn þetta sama ár.
Jón Ægisson heitinn hafði á tímabili sérstakt dálæti á þessari tónlist. Ég man ekki betur en að hann hafi átt vinyl-plötuna sem þetta lag er á.
Á umslagi plötunnar er mynd af söngvaranum stífmáluðum í búning sem væri flottur í leikhúsum eða á öskudaginn.
Platan var gefin út í nóvember árið 1981 og var 2. platan af þremur stúdíóplötum sem hljómsveitin gaf út.
Hvað heitir lagið, platan og hljómsveitin?
kv.
E.
ps. Þetta er næstsíðasta getraunin, nema ég verði sérstaklega beðinn um að halda áfram.
Adam and the ants
Prince Charming
Stand And Deliver.
Vinsamlegast ekki hætta með þessar stórskemmtilegu getraunir.
By: gömp on fös, 20. apr, 2007
at 5:22 pm
Góður, rétt hjá þér.
By: ellipe on lau, 21. apr, 2007
at 3:39 pm
hæ hó,
ég vildi bara kíkja við og óska ykkur hjónum til hamingju með árin 2 í hjónabandi!
By: Hulda on lau, 21. apr, 2007
at 3:51 pm
Takk fyrir Hulda.
Það er þá ekki úr vegi að senda líka hamingjuóskir til Kristrúnar Gömp með 2ja ára afmælið.
By: ellipe on lau, 21. apr, 2007
at 4:56 pm