Posted by: ellipe | fös, 18. maí, 2007

Svar við 10. (og síðustu) getrauninni.

Heilir og sælir aðdáendur góðir ;)  

Local Hero - Mark KnopflerLagið var að sjálfsögðu Going Home: Theme of Local Hero. Höfundurinn er Mark Knopfler.
Ef þið vitið ekki hver Mark Knopfler er, prófið þá að leita að upplýsingum á Google (ég prófaði að leita að “Mark Knopfler” og fékk 1.230.000 niðurstöður á 0,07 sekúndum).

Gömp og fjölskylda þáðu matarboð að launum fyrir vasklega frammistöðu í getraununum. Ég þakka þeim skemmtilegt kvöld.

—–

Yfir í annað.
Þetta blogg-kerfi er ágætt, en svoldið fyndið líka. Það sem ég á við, er að það er að hluta til á íslensku. Ég geri ekki ráð fyrir að einhver sitji sveittur við þýðingar, heldur er líklega verið að nýta forrit til þess. Dæmi um þetta er að á hnöppum stóð áður [Save and continue editing] [Save] [Publish] en núna stendur [Vista og breyta áfram] [Vista] [Publish].  Í staðin fyrir “comments” stendur “ummæli” og hvað stendur í staðin fyrir “spam comments”? Jú auðvitað “kæfu ummæli”.

—–

Enn annað og ekki síður mikilvægt.
Ég hef verið frekar lélegur að skrifa hérna undanfarið. Ástæðan er sú að það er gjörsamlega allt búið að vera á hvolfi síðustu vikurnar. Við fjölskyldan vorum að kaupa okkur hús í Keflavík. Reyndar í næstu götu við gömp og fjölskyldu. Ég er líka búinn að vera á kafi í atvinnuleit. Ég gat ekki ímyndað mér að það gæti verið svona mikið að gera í þeim bransa, endalaus viðtöl og vesen.

Jæja, hættur að blaðra í bili
kv.
E.


Responses

  1. ja hérna hér – eru bara allir að flytja ‘heim’? hmmmmm

    gangi þér vel í atvinnuleitinni!


Leave a response

Your response:

Flokkar