Fyrir þá sem eru að spá í sumarfríið (jú sumarið kemur á þessu ári líka), langar mig að benda á frábæra leið til að komast í eins ódýrt ferðalag til útlanda og kostur er. Um er að ræða HomeExchange.com sem snýst um það að 2 fjölskyldur skipta á heimilum í ákveðinn tíma. Oftast er bíll líka í skiptunum.
Við fjölskyldan höfum farið tvisvar og ekki orðið fyrir vonbrigðum, heldur þvert á móti. Fyrra skiptið vorum við 2 vikur í Brighton&Hove, með íbúð og bíl. Fólkið sem bjó þar var að skipta í fyrsta sinn eins og við. Næsta skipti fórum við til Frakklands í smábæ sem heitir Beaugency (ef ég man rétt). Franska fjölskyldan var að skipta í níunda sinn og ætluðu að skipta aftur við annað fólk annars staðar í heiminum það sama ár.
Með þessari aðferð, þarf maður bara að greiða fargjaldið, en hefur fyrstaflokks íbúð/hús til afnota (oftast eru öll helstu tæki til staðar) ásamt bíl. Þar að auki er algengt að fólk sem stundar þetta, sé búið að undirbúa ýmislegt fyrir mann. Finna til kort, útvega bæklinga og benda á áhugaverðustu staði til að skoða.
Tilboð um skipti eru reglulega að koma frá fjölskyldum hér og þar um heiminn. Ég hlakka mikið til að komast aftur til útlanda á þennan hátt. Kostirnir eru ótvíræðir, sérstaklega þegar maður ferðast með börn, því þá skiptir maður gjarnan við aðra barnafjölskyldu og þá er allt til alls fyrir börnin líka (sér herbergi með leikföngum o.þ.h.)
Eins og ég sagði, þá kemur sumarið (þó það sé ekki alveg í kortunum eins og er). Ég mæli sterklega með þessum ferðamáta.
Kv.
E.