Páskadagur að renna upp, runninn upp, nú eða liðinn, allt eftir því hvenær þú lest þetta.
Linda og Clarence orðin foreldrar eftir óvenju langa og stranga “meðgöngu” … til hamingju með það, ég fylgist reglulega með þeirra bloggi (tengill hér til hliðar).
Ég rakst á blogg um mat og vín rétt áðan. Bendi áhugasömum á að það er kominn tengill undir “Veitingar” hér til hliðar.
Með það í huga langar mig að segja að Cawarra frá Lindemans (Ástralía – Shiraz Cabernet) og Casillero del Diablo (Chile – Cabernet Sauvignon) eru í uppáhaldi þessa dagana hjá mér. Ég tími ekki að kaupa dýrari vín og sé enga ástæðu til, er fyllilega sáttur við þessi. Cawarra kostar 1.090 kr. og Diablo 1.190.
Er að lesa og hlusta á nokkrar bækur; The River Why er í iPodinum, Stranger House, Blóðskuld og Skuggi vindsins eru á náttborðinu.
Á heilanum hljómar “Ekki bíl” í flutningi Matta Matt.
Hvað er á döfinni hjá þér?
Hvaða vín er í uppáhaldi hjá þér?
Kv.
E.