Posted by: ellipe | mið, 26. mar, 2008

Áttavilltur?

Ég las þessa frétt/grein í dag og varð svoldið ringlaður. Ég keyri nefnilega Reykjanesbrautina “reglulega”, eða u.þ.b. 40 sinnum í mánuði og horfi beint í sólina á leiðinni til Kópavogs á morgnanna (um kl. 08:15). Þegar ég er staddur á Reykjanesbrautinni í nágrenni við Voga og keyri til norðurs….. hvert er ég þá að keyra?

Ég mæli með því að fólk lesi þetta með smá landfræðilega gagnrýnni hugsun (hvað sem það þýðir).

“Þegar skyggni er slæmt eða umferð lítil er töluverð hætta á að ökumenn á norðurleið telji að hin brautin, sem er þeim á vinstri hönd, sé fyrir umferð í gagnstæða átt en þeir geti ekið á tveimur akreinum. Þeir sem eru á leið suður ættu að gera sér betur grein fyrir ástandinu m.a. þar sem þeir þurfa að beygja til vinstri inn á kaflann sem um ræðir.”

Til útskýringar er meðfylgjandi gervitunglamynd. Þar sjást Vogar greinilega, Reykjanesbraut og Grindavíkurvegur einnig, en vegurinn frá Reykjanesbraut að Vogum sést frekar ógreinilega. Ég vil taka það fram að venju samkvæmt er norður upp á þessari mynd. Myndin er fengin af kortavef Google.

Vogar og nágrenni

Næsti pistill verður líklega um auglýsingu Lýsingar þar sem vitnað er í fjármálastjóra Arnarfells.

kv.
E.

ps. Gerðir ÞÚ virkilega ekkert um páskana? Lest ÞÚ engar bækur eða sérð bíómyndir? Átt ÞÚ þér ekkert uppáhalds rauðvín?
Deildu skoðun þinni með restinni af heiminum.


Responses

  1. hihi gaman að sjá þig hér….ég át páskaegg og elti krakkana um með fölskutennurnar á lofti og gaffal…dem sykursjokkið…..;)
    jæja kvitt kvitt…allavega ;)
    Halla V…

  2. Ja ég held að pistilhöfundur þarna sé kannski ekki alveg með áttir á hreinu… mér fannst þetta ekki passa.
    Er að reyna að berjast við “Mæling heimsins” eftir þýskan höfund. Bók sem fékk mikið lof og mikla sölu um allan heim en er ekki alveg að ná mér. ER samt að reyna að klára hana af skyldurækni því ég gaf pabba hana í jólagjöf og er með hana í láni… en ég held ég fari að gefast upp á henni.

    Sá nýu ísl myndina “Stóra planið” á föstudaginn. Gaman að sjá landslið ísl leikara en sagan fannst mér innihaldslítil. Gaman að sjá hvaða dóma hún fær meðal fólks.

    Kveðja frá höfuðborginni ;)

  3. heill og sæll
    er að kíkja á síðuna þína í fyrsta sinn…ólíkt þér sem hefur verið mun duglegri að líta á okkar síðu.

    bestu kveðjur, Hilmar

  4. Takk fyrir innlitið öll.
    Hilmar, það hefur enginn komið svona “langt að” inná síðuna mína áður :)

    kv.
    E.


Leave a response

Your response:

Flokkar