Posted by: ellipe | fös, 4. apr, 2008

Ný getraun

Þessi getraun er samin af Daníeli (pabbi bað mig um að skrifa getraun um eitt ákveðið lag sem hann hafði í huga) svo að hér er frumraun mín í þessum skrifum

Söngvarinn er nafni eins þekktasta rokksöngvara sögunnar,og er fæddur í sama mánuði og pabbi(elli) og Mark Knopfler sjálfur, en fimm árum yngri og spilar klárlega á gítar.

Hann er oftar en ekki prúðbúinn á sviði og notast við gleraugu.

Hljómsveitin U2 gerði lagið dancing barefoot, þar sem fyrsta erindið minnir svolítið á þetta lag sem ég er að spyrja um.

Giovan Straparalo skrifaði frægt ævintýri sem Walt Disney gerði síðan teiknimynd út frá, og við sögu koma þar fram dansandi tebollar, talandi klukka o.fl, en í texta lagsins er einmitt “minnst” á þetta ævintýri.

Lagið er upphaflega eftir Charles Aznavour og Herbert Kretzmer.

Lagið kom fram með þessum söngvara sem við leitum að í þekktri gamanmynd sem gerist í Englandi

í laginu er mikið sagt nafnið á laginu sjálfu þ.e.a.s nafnið á laginu kemur oft fyrir í því.

Konan hans er einnig þekkt söngkona frá Kanada og þau eiga saman tvíburasyni.

Þau hjúin hafa einnig samið saman nokkur lög.

Það má líka taka það fram að þessi söngvari er frá Englandi. =)


Responses

  1. Sælir,
    Ég veðja á Elvis Costello með lagið She.

  2. Já, ég veðja á lagið “She” :)

  3. Mofi… þú manst hvernig þetta var í prófunum í gamladaga… það getur verið óheppilegt að herma eftir næsta manni. Hann gæti haft rangt fyrir sér ;)

  4. Ég ætla ekki að kvelja ykkur lengur… þetta var að sjálfsögðu rétt hjá Kjartani.

    Elvis Costello er giftur Diana Krall. Í laginu She er m.a. sagt “She, might be the beauty or the Beast”. Lagið kom fyrir í myndinni Notting Hill.

    Dancing Barefoot með U2 byrjar svona:

    She is benediction
    She is addicted to he
    She is the root connection and
    She is connecting with me

    Góður Kjartan, gaman að sjá að fleiri en Gömp svari getraun rétt.

    Mofi… næs træ

    Gömp… hvar ertu? Hálf slappt hjá þér að ná þessu ekki.

    kv.
    E

  5. jahérna hér! ekki vissi ég að þau væru hjón!!! alltaf lærir maður einhvað nýtt kallinn minn hehe, ég hlusta mikið á Diana Krall og missti af henni þegar hún kom á “klakann” en alltaf gaman að kíkja á síðuna þína Elli ;) verð að viðurkenna að ég klikka nánast alltaf á tónlistinni! þó hlusta ég á alla tónlist!
    kv Hadda G


Leave a response

Your response:

Flokkar