Posted by: ellipe | mán, 28. apr, 2008

Alive and kicking

Halló… ég er enn á lífi.

Ég er búinn að vera mjög upptekinn bæði í vinnu og utan. Fór líka út (eða utan eins og sumum dettur í hug að segja). Skrapp til Berlínar í fáeina daga. Frábær borg. Segi kannski frá því síðar. Núna ætla ég að skella mér í pottinn fyrir svefninn.

Rakst á þetta um daginn. Þekki 2 nýbakaðar mæður, önnur þeirra gæti hugsanlega lent í þessu… eða hvað segir gömparinn um það?

Ég þori nú varla að minnast á að Keflvíkingar eru tvöfaldir meistarar í körfu… blendnar tilfinningar en… verður maður ekki að ala börnin upp í takti við skólasystkinin?

kv.
E


Responses

  1. spaugilegt myndband, eiginlega mjög krúttlegt :)

  2. Ha ha, ertu orðinn Keflvíkingur. Batnandi mönnum er best að lifa hi hi.


Leave a response

Your response:

Flokkar