Þar sem Dire Straits er sú hljómsveit sem er hvað hæst skrifuð í mínum huga, þá ákvað ég að setja tengla á diskana þeirra hingað í tímaröð. Með því að smella á hvern disk fyrir sig, opnast síða á Amazon.com sem er tileinkuð þeim diski. Þar er hægt að hlusta á sýnishorn úr öllum lögum hvers disks.
Fyrir þá sem vita ekki á hverju er best að byrja, þá fer það svoldið eftir bakgrunni hvers og eins. Gamlir pönkarar ættu að byrja á Making Movies. Það er engan veginn pönk diskur, en ætti að vera heppilegasti inngangspunktur til að byrja á. Þeir sem eru meira fyrir poppið, ættu að byrja á Brothers in arms. Þar er að finna nokkur af allra vinsælustu (og útvarpsvænstu) lögum hljómsveitarinnar, s.s. Money for Nothing, Walk of Life og Brothers in Arms. Fyrsti diskurinn mest metinn af mörgum aðdáendum, en ég sjálfur á mjög erfitt að gera upp á milli þessara diska, helst að On Every Street sé slakastur. Ég hreifst mest af Brothers in Arms til að byrja með, en finnst í dag allir eldri diskarnir betri.
![]() Dire Straits (1978) |
![]() Communiqué (1979) |
Making movies (1980) |
![]() Love Over Gold (1982) |
Brothers in Arms (1985) |



Mér finnst Dark side of the moon langbesta platan þeirra,einnig var Breakfast in America frábær hjá þeim.
By: Jon on mið, 6. des, 2006
at 12:10 am
Góður….
Að vísu er Dark side of the moon með Pink Floyd ef ég man rétt, og Breakfast in America með Supertramp. En það fer nú að styttast í að maður taki Queen fyrir, þá geturðu andað léttar. Ég skal hafa nóg af vitleysu þar fyrir þig til að leiðrétta.
By: ellipe on mið, 6. des, 2006
at 9:51 am
Ég er búinn að sitja fyrir framan tölvuna og bíða eftir þessu síðan þú nefndir þetta.
Ég hef ekki sofið og ekki mætt í vinnu,en það kemur ekki neitt mar.
Taktu niður sólargrillurnar,þá sérðu kannski á tölvuna skallapopparinn þinn.
By: Jon on fim, 7. des, 2006
at 8:52 pm
LOL….verst að það verða ekki fleiri svona komment
By: Hulda on þri, 6. feb, 2007
at 5:16 am