Jón Ægisson † in memoriam

3. janúar 2008

Minningarborði

PortrettÞann 3. janúar fyrir nákvæmlega ári síðan, fékk ég símhringingu sem ég á aldrei eftir að gleyma. Mamma hringdi og tilkynnti mér að Jón frændi minn væri dáinn. Verri fréttir gat ég ekki fengið. Í dag ætla ég að kveikja á kerti í minningu hans. Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um Jón, t.d. “körfuboltavöllurinn” við Norðurgarð í Keflavík, leikvöllurinn fyrir neðan Nónvörðu, hjólið hans (sem Jón eða Stebbi kenndur mér að hjóla á), jafnvægislistir á grindverkinu hjá ömmu og afa, móinn á bakvið húsið hjá ömmu og afa, Fiat Uno – fyrsti bíll Jóns sem var fyrsti bíll sem ég keyrði og eignaðist síðan, Hondan sem Jón keypti síðar (til að vera eins töff og bróðir sinn), Systrastapi, sumarhús ömmu og afa (og Gests), brotajárnshaugurinn í námunda við bústaðinn, “náin kynni” af Skaftá… ég gæti talið endalaust upp. Sem betur fer á ég þessar minningar. Þær eru stór hluti af mér.

Nýgift

Ég man líka eftir þegar Jón og Sússa komu í heimsókn og sögðu mér að þau væru að fara að gifta sig, ég hélt að Jón væri að grínast, hann var alltaf að grínast í mér.

Ég man líka að hann hét mér bjórbretti ef Man. Utd. ynni deildina eitt tímabilið. Svo komst ég að því að brettið hafði átt að vera passlega stórt fyrir eina dós. Jón þoldi ekki mitt lið en hélt sjálfur með Tottenham.

Ég man eftir því að hann átti það til að svara einkennilega í símann, t.d. svaraði hann “steypustöðin” og viðkomandi (sem var gjarnan mamma hans) afsakaði sig og lagði á. Augnabliki seinna hringdi síminn aftur. Þetta var mjög skemmtilegt þegar gömlu gráu skífusímarnir voru það eina sem var í boði. Hann átti það líka til að hringja og þykjast vera einhver annar, en tæknin kom upp um hann þegar númerabirtar urðu almennir.

Ég man líka eftir að hafa búið í næstu íbúð við hann og synir okkar léku sér saman.

Nú er ár liðið síðan hann lést og hans verður sárt saknað. Börnin hans hafa misst mikið. Amma þeirra (Bogga mamma Jóns) lést 16 janúar 2002, Jón pabbi þeirra lést 3. janúar 2007 og í gær 2. janúar 2008 var Valur pabbi Sússu jarðsettur, en hann lést 24. desember 2007.

Sússa, Ástþór Ingi og Berglind eiga samúð mína alla.


Portrett


Jón og Sússa við Gullfoss Jón, Berglind og Ástþór við Gullfoss

toffari.jpg 

Æfing 

Nýgift

Leave a response

Your response: