drengur Tryggvason
Skrifað í Fjölskyldan, vinir og kunningjar
Fyrir þá sem muna eftir Bergþóru Árnadóttur söngkonu og/eða hafa gaman af Jónasi Sigurðssyni tónlistarmanni, gjörið svo vel:
Kv.
E.
Skrifað í Tónlist
Til hamingju
Ég vil óska Tryggva Hannesi Blöndal og Kristínu Ársæls til hamingju með drenginn sem fæddist í nótt kl. 04:48 að staðartíma. Drengurinn var 15merkur og 50 sm.
Velkominn í heiminn litli nágranni.
kv.
E.
ps. Hér er barnalandssíða Irmu Rúnar og Kristrúnar sem eru stóru systur dagsins.
Skrifað í Skjóðan
Helgin búin
Erfið helgi búin, en potturinn bjargaði geðheilsunni. Ég hef ekkert að segja, nema að mig langar að allir sem vettlingi geta valdið kasti kveðju á heiminn hér í athugasemdunum við þessa færslu.
Halló heimur!
kv.
E.
ps. Þeir sem geta ekki vettlingi valdið mega líka vera með
Sumarið
Fyrir þá sem eru að spá í sumarfríið (jú sumarið kemur á þessu ári líka), langar mig að benda á frábæra leið til að komast í eins ódýrt ferðalag til útlanda og kostur er. Um er að ræða HomeExchange.com sem snýst um það að 2 fjölskyldur skipta á heimilum í ákveðinn tíma. Oftast er bíll líka í skiptunum.
Við fjölskyldan höfum farið tvisvar og ekki orðið fyrir vonbrigðum, heldur þvert á móti. Fyrra skiptið vorum við 2 vikur í Brighton&Hove, með íbúð og bíl. Fólkið sem bjó þar var að skipta í fyrsta sinn eins og við. Næsta skipti fórum við til Frakklands í smábæ sem heitir Beaugency (ef ég man rétt). Franska fjölskyldan var að skipta í níunda sinn og ætluðu að skipta aftur við annað fólk annars staðar í heiminum það sama ár.
Með þessari aðferð, þarf maður bara að greiða fargjaldið, en hefur fyrstaflokks íbúð/hús til afnota (oftast eru öll helstu tæki til staðar) ásamt bíl. Þar að auki er algengt að fólk sem stundar þetta, sé búið að undirbúa ýmislegt fyrir mann. Finna til kort, útvega bæklinga og benda á áhugaverðustu staði til að skoða.
Tilboð um skipti eru reglulega að koma frá fjölskyldum hér og þar um heiminn. Ég hlakka mikið til að komast aftur til útlanda á þennan hátt. Kostirnir eru ótvíræðir, sérstaklega þegar maður ferðast með börn, því þá skiptir maður gjarnan við aðra barnafjölskyldu og þá er allt til alls fyrir börnin líka (sér herbergi með leikföngum o.þ.h.)
Eins og ég sagði, þá kemur sumarið (þó það sé ekki alveg í kortunum eins og er). Ég mæli sterklega með þessum ferðamáta.
Kv.
E.
Skrifað í Skjóðan
Guðfræðipæling
Spurning hvort Mofi eða einhver annar geti skýrt þetta fyrir mér og lesendum bloggsins míns.
Sköpunin, þ.e. “verði ljós” og allt það, hvernig gat hún farið fram á nokkrum dögum. Er ekki dagur skilgreindur sem einn snúningur jarðarinnar um sjálfa sig? Var þá ekki búið að skapa sólina og jörðina áður en “dagur” varð skilgreint hugtak (notar guð hugtök)?
Hvenær tók guð upp það viðhorf að einn dagur væri sem þúsund ár og þúsund ár einn dagur… eða var það einhver annar? Eftir að hann notaði 6 daga til að skapa heiminn og 1 til að hvíla sig (þarf guð að hvíla sig)?
Kannski lýsa þessar pælingar bara einfeldni minni.
Ef einhver getur útskýrt þetta, má sá hinn sami gjarnan gera það í athugasemdakerfið (comments) á skiljanlegu máli, þ.e. íslensku tenglalausu máli.
Kv.
E.
Málfræði
Kannski er það aldurinn… ég er líklega farinn að ryðga í málfræðinni. Ég sá á forsíðu Fréttablaðsins að bankarnir hefðu veitt tvöfalt færri lán til íbúðakaupa í janúar heldur en í desember.
Ég spyr…. ef bankarnir veittu 122 lán í desember, hversu mörg lán veittu þeir í janúar ef þau voru tvöfalt færri?
kv.
E.
Skrifað í Skjóðan
Stefnumótatækni 101
Skrifað í Skjóðan
Athyglisvert
Mig langar að vekja athygli á þessu:
http://www.marly.blog.is/blog/marly/
Og svo í framhaldi af því er varla úr vegi að kíkja á www.logos-test.is til að fræðast meira.
kv.
E
Skrifað í Skjóðan