Posted by: ellipe | sun, 10. feb, 2008

Vetrarríki á Birkiteigi

Datt í hug að skella inn vetrarmyndum.

BirkiteigurGarðstóll
Húsið okkarViktor Ingi � sjónum
GarðhúsgögnSkjólveggur/snjóveggurKaldur pottur

kv.
E.

Posted by: ellipe | mið, 6. feb, 2008

Öskudagur

Í tilefni dagsins.
Fyrir þá sem ekki vita, þá er þetta Viktor Ingi til hægri á myndinni, en ekki Jack Sparrow eða Johnny Depp ;)

Viðbót: Það eru fleiri myndir á www.holtaskoli.is. Viktor Ingi er þar á forsíðunni (a.m.k. í dag).

 Viktor Ingi Sparrow

Posted by: ellipe | fim, 3. jan, 2008

3. janúar

Minningarborði

PortrettÞann 3. janúar fyrir nákvæmlega ári síðan, fékk ég símhringingu sem ég á aldrei eftir að gleyma. Mamma hringdi og tilkynnti mér að Jón frændi minn væri dáinn. Verri fréttir gat ég ekki fengið. Í dag ætla ég að kveikja á kerti í minningu hans.

Það er svo margt sem kemur upp í hugann þegar ég hugsa um Jón, t.d. “körfuboltavöllurinn” við Norðurgarð í Keflavík, leikvöllurinn fyrir neðan Nónvörðu, hjólið hans (sem Jón eða Stebbi kenndur mér að hjóla á), jafnvægislistir á grindverkinu hjá ömmu og afa, móinn á bakvið húsið hjá ömmu og afa, Fiat Uno – fyrsti bíll Jóns sem var fyrsti bíll sem ég keyrði og eignaðist síðan, Hondan sem Jón keypti síðar (til að vera eins töff og bróðir sinn), Systrastapi, sumarhús ömmu og afa (og Gests), brotajárnshaugurinn í námunda við bústaðinn, “náin kynni” af Skaftá… ég gæti talið endalaust upp. Sem betur fer á ég þessar minningar. Þær eru stór hluti af mér.

Nýgift 

Ég man líka eftir þegar Jón og Sússa komu í heimsókn og sögðu mér að þau væru að fara að gifta sig, ég hélt að Jón væri að grínast, hann var alltaf að grínast í mér.

Ég man líka að hann hét mér bjórbretti ef Man. Utd. ynni deildina eitt tímabilið. Svo komst ég að því að brettið hafði átt að vera passlega stórt fyrir eina dós. Jón þoldi ekki mitt lið en hélt sjálfur með Tottenham.

Ég man eftir því að hann átti það til að svara einkennilega í símann, t.d. svaraði hann “steypustöðin” og viðkomandi (sem var gjarnan mamma hans) afsakaði sig og lagði á. Augnabliki seinna hringdi síminn aftur. Þetta var mjög skemmtilegt þegar gömlu gráu skífusímarnir voru það eina sem var í boði. Hann átti það líka til að hringja og þykjast vera einhver annar, en tæknin kom upp um hann þegar númerabirtar urðu almennir.

Ég man líka eftir að hafa búið í næstu íbúð við hann og synir okkar léku sér saman.

Nú er ár liðið síðan hann lést og hans er sárt saknað. Börnin hans hafa misst mikið. Amma þeirra (Bogga mamma Jóns) lést 16 janúar 2002, Jón pabbi þeirra lést 3. janúar 2007 og í gær 2. janúar 2008 var Valur pabbi Sússu jarðsettur, en hann lést 24. desember 2007.

Sússa, Ástþór Ingi og Berglind eiga samúð mína alla.

kveðja
Elli

ps. Ef þið eigið einhverjar minningar sem þið eruð til í að deila, endilega skrifið þær hér í athugasemdakerfið.

Posted by: ellipe | sun, 23. des, 2007

Jólin koma

Jóli

Jæja, ég get ekki látið jólin koma án þess að skrifa smá jólablogg.

Þorláksmessu er að ljúka. Skötuveislan búin. Skatan var ljúffeng að venju. Ég hef hingað til haldið því fram að skata sé minn uppáhalds matur og ég held að það sé ekkert að breytast.

Dagurinn fór í að skreyta húsið að utan með jólaljósum. Fljótt á litið var það svoldið glæfralegt, enda húsið tveggja hæða og fjörugrjót við gaflinn. Þetta gekk þó einsog í sögu.

Sætaferðir voru til Grindavíkur, þ.e. við tókum ömmu, afa, Berglindi og Ástþór Inga Jónsbörn með. Komum aftur seint og um síðir. Öll búin að borða yfir okkur (nema Viktor og Sunna).

Jólakveðja frá fjölskyldunni Birkiteigi 9, Keflavík

Posted by: ellipe | mið, 19. des, 2007

Mistök til að læra af

Það má segja að það hafi verið logn hér á blogginu mínu síðustu vikur/mánuði. Svosem engin ástæða fyrir því, önnur en almenn bloggleti (nýyrði?). Það er meira logn í kortunum fyrir næstu vikur, en mig langar að segja frá “mistökum” sem ég og mín fjölskylda gerðum. Við erum búin að læra af þessum mistökum og viljum að sem flestir geri það líka.

“Mistökin” hófust í vor, fyrir fermingu Daníels, þegar við pöntuðum myndatöku hjá Ljósmyndastofu Kópavogs sem við höfðum góða reynslu af. Nú voru komnir nýir eigendur og við létum slag standa. Okkur var lofað að stór mynd yrði tilbúin fyrir fermingu sem hægt var að hafa til sýnis í veislunni. Tímasetningar á því hvenær sú mynd yrði tilbúin klikkuðu ítrekað. Við fengum myndina ekki fyrr en seint á föstudags- eða laugardagskvöldi fyrir ferminguna.

Sagan er ekki alveg búin. Við pöntuðum fyrir ca. 2 vikum fleiri myndir og báðum um að albúm með myndum sem við höfðum fengið yrði athugað m.t.t. lýsingar. Það var ekkert hægt að gera fyrir myndirnar í albúminu (fengum við að vita eftir nokkra eftirfylgni) en myndirnar sem við pöntuðum áttu að vera tilbúnar á ákveðnum degi. Það klikkaði, og var okkur lofað að þær yrðu tilbúnar á öðrum tíma, sem klikkaði líka… og aftur… og aftur.

Vorum við sátt? Nei. Í hvert sinn sem við fengum fréttir um að myndirnar væru ekki tilbúnar, kvörtuðum við hærra (eðlilega?). Að lokum hafði ljósmyndari, sem ég held að sé jafnframt eigandi Ljósmyndastofu Kópavogs, samband og hellti úr skálum reiði sinnar(?) vegna frekjugangs og óraunhæfra krafna af okkar hálfu(?).

Við ætlum semsagt aldrei að versla aftur við þessa ljósmyndastofu. Aldrei.

Miðað við framkomu eiganda við viðskiptavini sína (okkur) ætti…. æ… ég þori ekki útí þá sálma…

Ég geri ekki ráð fyrir að aðstandendur Ljósmyndastofu Kópavogs komi til með að læra af þessu, þeir hefðu þá átt að gera það strax í vor.

Næsti pistill verður vonandi á “jólalegri” og friðsamlegri nótum.

kv.
E

Posted by: ellipe | þri, 9. okt, 2007

Smá djók

Gott myndband af brandaraköllum hér.

 kv.
E.

Posted by: ellipe | mið, 3. okt, 2007

Smá klúður í getrauninni

pælingMér skilst á mér fróðari mönnum (og konum) að ég hafi f***að upp síðustu gátu.

 Í sárabætur kemur hér ein óformleg.

Spurt er um hljómsveit og lag. Einu vísbendingarnar eru textabrot sem ég snara yfir á íslensku (án þess að velta fyrir mér samhenginu… bara orðaþýðing í gangi hér). Ég ætla ekki að gefa upp úr hvaða tungumáli þetta er þýtt.

1. vísbending:

komdu með mér
inní trén
við munum liggja í grasinu
og láta tímann líða

Reynið þetta án þess að gúgla

kv.
E.

ps. (trén eða tréin… ég er ekki nógu góður í móðurmálinu til að vita hvort er rétt)

Posted by: ellipe | þri, 25. sep, 2007

Smá stunt

sirkus?Ég er ekki viss á hvorum enda stigans ég vildi vera…. og þó…

Kv.

E.

Posted by: ellipe | mán, 24. sep, 2007

Haustgetraun 2007, 1. gáta frh.

Þetta gengur frekar hægt… eru sumarfríin ekki örugglega búin?

Höfundurinn, kántrý-kallinn er einn sá þekktasti í sínum geira frá upphafi! Need I say more? Söngvarinn hefur komið við sögu áður í getraununum… núna er ég búinn að segja of mikið.

Kv.
E.

Posted by: ellipe | þri, 18. sep, 2007

Haustgetraun 2007, 1. gáta frh.

Ef mér skjátlast ekki, þá hefur Maggi Eiríks samið lag sem fjallar um svipaða hluti. Lag Magnúsar tók þátt í forkeppni Evróvisjón hér heima á klakanum, Ellen Kristjánsdóttir söng. Söngvari erlenda lagsins er líklega um sextugt (hef þó ekki kynnt mér það mjög nákvæmlega). Höfundur erlenda lagsins gerði lagið frægt sjálfur, en hann lést fyrir ekki svo löngu síðan.

 kv.
E.

« Newer Posts - Older Posts »

Flokkar