Þá er komið að hinni stórkostlegu hljómsveit Queen… þó fyrr hefði verið myndu sumir segja.
Svo ég segi pínulítið frá sögu sveitarinnar, þá var hún stofnuð árið 1970 af þeim Brian May (gítar), Freddie Mercury(söngur) og Roger Taylor (trommur), sem voru áður í hljómsveitinni Smile. John Deacon bassaleikari fullkomnaði svo hópinn árið 1971.
Sveitin var stofnuð í London og gaf út sína fyrstu breiðskífu árið 1973 og bar hún hið frumlega nafn Queen (fyrir yngri lesendur, þá er breiðskífa svört stór vínilplata, geisladiskar komu ekki á markað fyrr en ca 1984-1985). Þess má geta að margar góðar sveitir hafa einmitt titlað fyrstu plötur sínar eftir hljómsveitunum, sbr. Led Zeppelin og Dire Straits.
Næsta plata sveitarinnar bar álíka frumlegt nafn eða Queen II. Þeir virðast svo hafa tekið sig verulega á eftir það í að velja titla á plöturnar sínar, en alls gáfu þeir út 15 stúdíóplötur á árunum 1973-1995. Mig langar helst að minnast á A Day at the races, A night at the opera, The Game (mitt uppáhald), A Kind of Magic, The Miracle og Innuendo.
Ég hafði hugsað mér að lista hér upp helstu lög sveitarinnar, en þau eru bara svo mörg sem eru frábær að ég get varla valið og hafnað. Þau sem koma fyrst upp í hugann eru: Boheimian Rapsody(‘75), We are the champions(‘77), Crazy little thing called love, Anotherone bites the dust, I want to brake free, Radio Ga Ga, …, og ég verð að hætta hér, annars gæti ég talið nánast endalaust upp.
Freddie Mercury lést í nóvember árið 1991 eftir að hafa barist við eyðni. Platan(diskurinn) Made in Heaven kom út árið 1995 og innihélt upptökur sem voru ókláraðar við andát þessa magnaða söngvara.
Margir hafa reynt að feta í hans fótspor, sungið lögin sem hann söng, jafnvel með restinni af hljómsveitinni, en það hefur alltaf komið á daginn að það var bara einn Freddie.
Ég kem til með að bæta myndum og tenglum á þessa síðu. Ef ég hef farið rangt með staðreyndir eða sleppt einhverju sem ætti að koma fram, endilega kommentið á þetta og ég tek það til skoðunar.
Bara eitt komment til að byrja með,félagi Freddie var ekki einn af stofnendum
hljómsveitarinnar.
By: Jon on fös, 15. des, 2006
at 3:48 pm
hmm… ok, takk fyrir
Voru það þá bara brian may og roger taylor?
By: ellipe on mán, 18. des, 2006
at 7:40 pm
“A day at the race” og “A night at the opera” eru í mestu uppáhaldi hjá mér, en það er líka kannski vegna þess að ég á ekki The Game, The Miracle og Innuendo. “A kind of magic” var fyrsti Queen diskurinn minn.
Ég þarf að fara að bæta í safnið mitt.
Þú mættir alveg setja upp lista yfir plöturnar/diskana þeirra svo ég sjái hvað mig vantar
Ég á sem sagt
1. A kind of magic
2. A day at the races
3. A night at the opera
4. Queen Greatest hits
5. Queen Greatest hits II
6. Queen Pre Ordained
7. Made in Heaven
By: Hulda on fim, 18. jan, 2007
at 4:00 pm
Það fer bráðlega í vinnslu
kv.
E
By: ellipe on fim, 18. jan, 2007
at 4:13 pm
ég mæli með dvd-disknum Queen Rock Montreal frá tónleikum sem Queen hélt í Montreal 24.-25. nóv. 1981. Við Sylvan skemmtum okkur vel við að hlusta og horfa á diskinn saman
By: Hulda P on lau, 10. nóv, 2007
at 6:56 am
Takk fyrir ábendinguna
By: ellipe on fös, 16. nóv, 2007
at 11:13 pm